Bækur

Lestrarbækur

Lestur bóka fyrir börn stuðlar að lestrarnámi. Listinn hér fyrir neðan tekur saman nokkrar bækur sem vinna sérstaklega með stafrófið og/eða hljóðin sem stafirnir mynda. Allar bækurnar er hægt að nálgast á bókasöfnum eða í bókabúðum.

Stafrófskver

Hver stafur fær sína eigin vísu með ýmsum orðum sem byrja á viðkomandi staf.

Gralli gormur og stafaseiðurinn mikli

Saga þar sem stafrófinu er fléttað inn í.

Stafir og tákn

Hver og einn stafur með sína eigin blaðsíðu þar sem sagt er hvort að stafurinn sé sérhljóði eða samhljóði, hvernig hann er sagður á táknmáli og hvernig hann er borinn fram. Einnig er eitt orð skoðað fyrir hvern staf og hversu mörg atkvæði eru í því.

Stafrófskver

Saga þar sem stafrófinu er fléttað inn í.

Stafróf fuglanna

Farið yfir bókstafina í stafrófsröð. Við hvern staf er fugl eða orð sem tengjast fuglalífinu ásamt fróðleik og flottum myndum.

Stafrófið

Íslenska stafrófið frá A–Ö fyrir þau yngstu með myndum úr íslenskum veruleika.

Stafakarlarnir

Saga þar sem stafrófinu er fléttað inn í.

Stafavísur – Lestrarnám í ljóði og söng

Fyrir hvern staf er vísa með lagi eftir mismunandi höfunda sem haft var samband við til þess að setja saman þetta safn.

Stafurinn minn og stafurinn þinn

Hver og einn stafur með eina blaðsíðu með eigin mynd sem byrjar á stafnum og ein einföld setning fyrir neðan.

Litla stafabókin

Bókin sýnir hvern staf og mynd sem tengist honum og hentar vel yngstu börnunum.

Stafaleikurinn

Bókin vinnur með skilning barna á stafsetningu og þjálfar þau í lestri þar sem stafir mynda orð og orðin mynda setningar.

Lubbi finnur málbein

Bókin vinnur með málhljóð íslenskunnar og hvert og eitt hefur sögu, vísu með lagi, myndum og táknrænum hreyfinum. Efnið er mikið notað í íslenskum leikskólum.

Vinnubækur

Margar bókabúðir og vefverslanir bjóða upp á mikið úrval af verkefnabókum sem vinna með stafina, stafrófið, lesskilning, orðaforða og annað sem tengist lestrarnámi. Listinn er ekki tæmandi og sífellt bætast við bækur í þessum flokkum. Engar tvær bækur eru eins þó margar vinni með sama efni eða svipaða uppsetningu, því má alltaf finna eitthvað sem hentar hverju barni.

Tússbækur

Ein af nokkrum bókum frá litlum lærdómshestum. Þessar bækur eru hannaðar til þess að nota mörgum sinnum þar sem hægt er að nota tússlit við gerð verkefnanna og síðan er hægt að stroka hann út og vinna verkefnin aftur.

Geitungurinn

Bækurnar um geitunginn eru nokkrar og vinna með ýmis verkefni sem hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestrarnáminu.

Límmiðabækur

Til eru alls konar límmiðabækur sem geta gert verkefnin skemmtileg og fengið börnin til þess að taka meiri þátt.


Hvar má finna vinnubækur?

Hér má finna nokkar vefverslanir með alls konar vinnubókum sem hægt er að nýta.