Hvernig börn læra að tengja saman stafi og hljóð
Hvað er umskráning?
Umskráning er þegar barn tengir saman bókstafi og hljóð til að lesa orð. Barnið lærir smám saman að þekkja hvernig stafir hljóma og hvernig hægt er að setja hljóð saman í orð.
Þetta er mikilvægur grunnur í lestrarnámi og hjálpar barninu að verða öruggara í lestri.
Hvað er hljóðaaðferð?
Hljóðaaðferð er leið til að kenna lestur þar sem áhersla er lögð á tengsl bókstafa og hljóða. Börn læra fyrst hljóð stafanna og æfa sig síðan í að tengja hljóðin saman í orð.
Með æfingu verður lesturinn smám saman sjálfvirkari og auðveldari.
Af hverju skiptir þetta máli?
Þegar börn æfa sig í að tengja saman bókstafi og hljóð verða þau öruggari í lestri. Með tímanum þurfa þau síður að stafa sig í gegnum hvert orð og geta betur einbeitt sér að því sem textinn segir.
Grunnþættir hljóðaaðferðar
- Þekkja hljóð hvers bókstafs
- Læra nöfn og útlit stafanna
- Þekkja tengsl stórra og litla stafa
- Æfa að hlusta á og greina hljóð í orðum
- Tengja saman hjóð til að mynda orð
Viðhorf fullorðinna skiptir máli
Börn finna fljótt hvernig fullorðnir tala um lestur og nám. Jákvæð hvatning, þolinmæði og hrós geta aukið sjálfstraust barnsins og áhuga þess á lestri.
Mikilvægt er að muna að börn læra á mismunandi hraða og þurfa ólíkan stuðning.
Hugmyndir að aðferðum til að þjálfa umskráningu og hljóðaaðferð
Góður grunnur í lestri byrjar á því að börn þekki stafi og hljóð þeirra. Hér eru hugmyndir að leiðum sem hægt er að nota heima til að æfa stafi og hljóð á einfaldan og skemmtilegan hátt.
Stafaspil
Stafir í gegnum söng
Viltu lesa meira?
Heimildir
Helga Sigurmundsdóttir. (2011). Að þjálfa færni í umskráningu. Í Steinunn Torfadóttir (ritstjóri), Leið til læsis: Lesskimun fyrir fyrsta bekk grunnskóla (bls. 85–92). Menntamálastofnun og Háskóli Íslands.
Oakhill, J., Cain, K. og Elbro, C. (2015). Understanding and teaching reading comprehension. Routledge.