Hljóðkerfisvitund

Hvað er hljóðkerfisvitund?

Hljóðkerfisvitund er hæfni til að heyra og greina hljóð í tungumálinu. Börn byrja smám saman að taka eftir rími, atkvæðum og einstökum hljóðum í orðum. Þessi færni er mikilvægur grunnur í lestrarnámi og þróast í skrefum, frá stærri hljóðeiningum yfir í smærri.

Rím

„Orð sem ríma. Ending orða sem hljóma eins, þ.e. sérhljóðið og það sem á eftir kemur. Ritháttur á rímhluta er eins, t.d. s-ál, m-ál“ (Árnastofnun, e.d.c).

Atkvæði

„Framburðareining sem í íslensku inniheldur alltaf eitt sérhljóð og getur auk þess haft eitt eða fleiri samhljóð“ (Árnastofnun, e.d.a).

Hljóðavitund

„Vitund um hljóð málsins og færni til að greina þau og raða saman“ (Árnastofnun, e.d.b).

Þegar börn æfa sig í að tengja saman bókstafi og hljóð verða þau öruggari í lestri. Með tímanum þurfa þau síður að stafa sig í gegnum hvert orð og geta betur einbeitt sér að því sem textinn segir.

  • Þekkja og búa til rím
  • Klappa og telja atkvæði í orðum
  • Hlusta eftir fyrsta hljóði í orði
  • Greina einstök hljóð í orðum
  • Tengja saman hljóð til að mynda orð
  • Leika sér með hljóð og orð í tali



Viðhorf fullorðinna skiptir máli

Börn læra mikið í gegnum leik, söng og dagleg samtöl. Þegar fullorðnir leika sér með orð, rím og hljóð með börnum styrkist hljóðkerfisvitund þeirra smám saman.

Mikilvægt er að æfingarnar séu jákvæðar og skemmtilegar svo barnið upplifi öryggi og hafi áhuga á að taka þátt.



Hugmyndir að aðferðum til að þjálfa hljóðkerfisvitund

Hægt er að styrkja hljóðkerfisvitund barna á einfaldan og skemmtilegan hátt í gegnum leik, söng og samtöl.

Börn læra þessa færni á mismunandi hraða og því er mikilvægt að æfingar séu jákvæðar og henti áhuga barnsins.


Rím

Það er hægt að æfa rím á marga vegu.

  • Spyrja barnið hvaða orð ríma saman
  • Finna eða útbúa myndir af orðum sem ríma og setja upp sem spil
    • spila „tveir eins“ með rímorðum
    • nota samstæðuspil með myndum sem ríma
    • fara í „veiðimann“ með rímorðum
  • Hlutsta á lög/vísur/sögur og ræða saman hvar rímorðin eru

Klappa atkvæði

Gaman getur verið að klappa atkvæði í orðum með barninu á meðan orðin eru sögð upphátt.


Telja atkvæði

Hægt er að nota ílát og spjöld til að flokka orð eftir fjölda atkvæða.

Byrja má á að útbúa fjögur ílát. Á hverju íláti er mynd af orði með ákveðinn fjölda atkvæða, til dæmis ljón fyrir eitt atkvæði.

Síðan eru útbúin spjöld með orðum sem hafa mismörg atkvæði.

Barnið flokkar orðin í rétt ílát eftir því hversu mörg atkvæði þau hafa.


Heimildir

Árnastofnun. (e.d.a). Íðorðabankinn. https://idordabanki.arnastofnun.is/leit/atkv%C3%A6%C3%B0i

Árnastofnun. (e.d.b). Íðorðabankinn. https://idordabanki.arnastofnun.is/leit/hlj%C3%B3%C3%B0avitund

Árnastofnun. (e.d.c). Íðorðabankinn. https://idordabanki.arnastofnun.is/leit/r%C3%ADm

Helga Sigurmundsdóttir. (2011). Að þjálfa færni í hljóðkerfis- og hljóðavitund. Í Steinunn Torfadóttir (ritstjóri), Leið til læsis: Lesskimun fyrir fyrsta bekk grunnskóla (bls. 63–84). Menntamálastofnun og Háskóli Íslands.