Að lesa fyrir börn

Af hverju að lesa fyrir börn?

Foreldrar eru fyrstu kennarar barna. Þeir kenna börnum sínum að ganga, tala, hjóla  og ótal margt annað sem við teljum sjálfsagðan hlut. Foreldrar geta einnig stuðlað að jákvæðri skólabyrjun barna sinna með því að byggja upp góðan grunn í lestri heima fyrir, meðal annars með því að tala við börnin, lesa fyrir þau, ræða um hluti, syngja lög, segja sögur og útskýra ný orð þegar þau koma fyrir eða þegar barnið spyr. Allt byggir þetta upp reynslu barnanna og þeim mun auðveldara verður fyrir barnið að ná tökum á lestri, lesskilningi og læsi.

Með lestri gefum við börnum tækifæri  á að kynnast nýjum orðum, upplifunum og hugtökum sem þau að jafnaði kynnast ekki í daglegu umhverfi og aðstæðum. Þannig hjálpar lestur til við að búa til stærri og sterkari grunnorðaforða sem hjálpar þeim að læra og nota enn fleiri ný orð sem styrkir síðan málþroska þeirra ásamt leik- og hugarfærni (Ásthildur Bj. Snorradóttir o.fl., 2014, bls. 40, 43).

Lestur er mikilvæg samverustund.

Með því að lifa þig inn í lesturinn, gera raddir, spyrja barnið spurninga fyrir, meðan og á eftir, þá ertu að byggja upp áhuga og jákvæða mynd á lestri.

Gott að hafa í huga áður en þú byrjar

Með því að lesa fyrir börn undirbúum við þau undir sjálfstæðan lestur. Börn sjá myndir í bókum og geta oft spáð fyrir um hvað er að fara að gerast í sögunni eða skapað eigin sögu út frá því sem myndirnar sýna. Einnig geta börn mjög fljótlega munað um hvað bókin fjallar þegar þau skoða hana síðar og muna jafnvel hvað stendur í henni þó þau séu ekki orðin læs. Allt er þetta undirbúningur að  lestrarnámi. Uppsetning lestrarstundarinnar er einnig mikilvæg til að stuðla að gæðum og ánægju. Það fyrsta sem þarf að hafa í huga er að efnið sem lesið er þarf að hæfa þroska barnsins, einnig hefur lesbirta, utanaðkomandi áreiti, raddblær, andlitssvipur og túlkun áhrif á upplifun. Með því að lifa sig inn í lesturinn þegar lesið er fyrir barnið, eykur þú líkurnar á að barnið haldi athygli og lifi sig inn  í sögunna samhliða þeim sem les (Ásthildur Bj. Snorradóttir o.fl., 2014, bls. 42).

Gott að hafa í huga áður en þú byrjar

Bækur við hæfi

Mikilvægt er að börn sem eru að ná valdi á tungumálinu fái bækur við hæfi, s.s. með orðum sem eru ný í sambland við orð sem þau þekkja (Oakhill o.fl, 2015, bls. 4).

Fjölbreytt lesefni og gott aðgengi

Mikilvægt að börn hafi greiðan aðgang að fjölbreyttu lesefni og að þeim sé gefinn tími til þess að lesa og finna það sem þau hafa áhuga á (Miller og Lesesne, 2022, bls. 39).

Lesum fyrir börn

Gerum lestrarstundir að fjölskyldustundum. Með þessu er börnum kennt að bækur eru mikilvægar og skemmtilegar og einnig að fullorðnir sækjast líka í þær (Kamhi o.fl., 2014, bls. 27).

Byggja upp vana

Að byggja upp vana þar sem Rannsóknir sýna að börn sem skora hvað hæst á lestrarprófum lesa að meðaltali um 20 mínútur á dag og spilar yndislestur stóran part samhliða lestri í skólum (Miller og Lesesne, 2022, bls. 39).

Kennum börnum að finna tíma til að lesa

Kennum börnum að lestur sé sjálfsagður hlutur, til dæmis þegar við erum að bíða eftir einhverju og áður en farið er að sofa (Miller og Lesesne, 2022, bls. 41).

Lesum í kringum börn

Þegar börn sjá foreldra sína og aðra fullorðna lesa sér til gamans læra þau að lestur veitir ánægju en er ekki bara skylduverk.(Turner o.fl, 2016, bls. 276).

Spurningar

Foreldrar og forráðamenn gegna lykilhlutverki í lestrarnámi barna sinna. Mikilvægt er að tala við börnin, syngja og lesa fyrir þau, segja þeim sögur, jafnvel fá þau til að taka þátt í að gera innkaupalista heimilisins – allt byggir þetta upp læsi. Einnig er mikilvægt að foreldrar geri lestur og bækur að jákvæðum og spennandi hlutum, sem hvetur börn áfram. Ein leið til þess er að sýna lestrinum áhuga og spyrja spurninga.

Með því að spyrja spurninga hvetjum við börnin til að hugsa ásamt því að byggja upp lesskilning og orðaforða. Þó er mikilvægt að spyrja ekki allt of mikið svo spurningarnar verði ekki að kvöð. Hér eru nokkrar hugmyndir að spurningum sem má spyrja barnið áður en lestur hefst, meðan lesið er og eftir að sögu er lokið.


Fyrir lestur

Nafnið á bókinni

  • Hvað heldur þú að bókin sé um?
  • Þekkir barnið rithöfundinn eða þann sem myndskreytti?

Myndin á forsíðunni

  • Hvað segir myndin á forsíðunni okkur um bókina?

Skoðið bakhliðina á bókinni og lesið um hvað bókin er

  • Ræðið um hvort hugmyndir um bókina hafi verið réttar.
  • Hvernig heldur þú að bókin fari?

Sagan

  • Stoppa og ræða um hluti sem tengjast barninu eða barnið getur tengt við. Þannig eflir það lesskilning barnanna.

Orð

  • Stoppið á nýjum orðum og ræðið um merkingu þeirra, reynið að tengja orðin við fyrri upplifanir eða orð sem börnin þekkja fyrir.

Meðan á lestri stendur

  • Hvað þarf ___ að gera?
  • Hvað er ___ að gera í sögunni?
  • Hvar er ___?
  • Þekkir þú þetta orð?
  • Veistu hvað þetta orð þýðir?
  • Hvað heldur þú að gerist næst?
  • Hvað er að gerast á myndinni?
  • Minnir þetta þig á eitthvað sem þú hefur séð eða gert? Hvað?
  • Hverju þarf ___ að komast að?
  • Manst þú þegar…?
  • Hvaða vandamál er ___ að fást við?

Eftir lestur

Byrja að spyrja spurningar sem hjálpar barninu að tengja við söguna

Það getur verið eitthvað sem barnið sjálft tengir við eins og:

  • Upplifun
  • Atburðir
  • Bækur
  • Fólk

Spurningar um eitthvað ákveðið

Gott er að spyrja um einhverja vissa hluti sem gerðust í sögunni til þess að ræða um innihald hennar. Sem dæmi:

  • Persónur
  • Atburðir
  • Uppsetning sögunnar
  • Vandamálin sem verið var að glíma við
  • Lausnin í endanum

Hvað fannst þér skemmtilegast við söguna?

Fá barnið til þess að rifja upp það sem gerðist og ræða um það:

  • Uppáhalds persóna?
  • Hvað stóð fremst?
  • Hvað hefðir þú gert ef þú hefðir verið X?

Uppsetning sögunnar

Uppsetning sögunnar vísar til þess hvar sagan gerðist og helstu atriði hennar.

  • Hvaða tíma dags gerðist sagan?
  • Hvaða árstíð var?
  • Breyttist umhverfið í sögunni?
  • Hvar gerist sagan?
  • Á hvaða tíma gerist sagan? (ár eða tímabil)

Höfundurinn

  • Af hverju heldur þú að höfundurinn hafi skrifað þessa sögu?
  • Hvernig finnast þér sögurnar eftir þennan rithöfund?

Boðskapur

Hægt að ræða um hvað boðskapur er með því að spyrja um:

  • Getur þú/þið fundið boðskap í sögunni?
  • Hvað kennir sagan þér um ___?

Heimildir

Ásthildur Bj. Snorradóttir, Anney Ágústsdóttir, Bergrós Ólafsdóttir, Margrét Þóra Jónsdóttir og Sigurður Sigurjónsson. (2014). Snemmtæk íhlutun í málörvun tveggja til þriggja ára barna. Höfundar

Kamhi, A. G. og Catts, H. W. (2014). Language and reading disabilities (3. útgáfa). Pearson  

Miller, D. og Lesesne, R. S. (2022). The joy of reading. Heinemann. 

Oakhill, J., Cain, K. og Elbro, C. (2015). Understanding and teaching reading comprehension. Routledge. 

Turner, J. D., Crassas, M. E. og Segal, P. H. (2016). Family matters: Home influences and individual differences in children’s reading development. Í P. Afflerback (ritstjóri), Handbook of individual differences in reading: Reader, text and context (bls. 273–285). Routledge.