Lesskilningur

Hvað er lesskilningur?

Lesskilningur er hæfnin til að skilja það sem lesið er. Til þess þurfa börn bæði að geta lesið orðin og skilið merkingu þeirra. Orðaforði og lesskilningur tengjast því mjög náið. Því fleiri orð sem barn skilur, því auðveldara á það með að skilja texta. Börn byggja lesskilning smám saman upp í gegnum lestur, samtöl og reynslu úr daglegu lífi.

Þegar börn skilja það sem þau lesa verður lesturinn merkingarbærari og skemmtilegri. Góður lesskilningur hjálpar börnum að læra nýja hluti, fylgjast betur með í námi og ræða um sögur og texta.

  • Þekkja og skilja orð
  • Tengja texta við fyrri reynslu
  • Geta sagt frá því sem var lesið
  • Spá fyrir um hvað gerist næst
  • Draga ályktanir út frá texta og myndum
  • Ræða um sögur og texta



Viðhorf fullorðinna skiptir máli

Samræður um bækur, sögur og myndir hjálpa börnum að styrkja lesskilning sinn. Þegar fullorðnir spyrja spurninga, hlusta og ræða efni texta með börnum fá þau tækifæri til að æfa sig í að hugsa um það sem þau lesa.

Mikilvægt er að börn upplifi lestur sem jákvæða og áhugaverða upplifun.



Hugmyndir að aðferðum til að þjálfa lesskilning

Lesskilningur styrkist þegar börn fá tækifæri til að ræða um sögur, myndir og texta. Með lestri, samtölum og spurningum geta börn æft sig í að skilja betur það sem þau lesa og tengja það við eigin reynslu. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að leiðum sem geta stutt lesskilning barna á einfaldan og skemmtilegan hátt.


Lestrarstund

Lestur er góð leið til að efla lesskilning og orðaforða barna. Gott er að stoppa reglulega í lestri og ræða við barnið um söguna, myndirnar og það sem gæti gerst næst.

Í lestrarstund geta börn til dæmis:

  • sagt hvað þeim finnst um söguna
  • spáð fyrir um hvað gerist næst
  • klára setningar
  • búið til eigin sögu út frá myndunum

Byggja upp orðaforða

Orðaforði og lesskilningur tengjast náið. Því fleiri orð sem barn skilur, því auðveldara á það með að skilja texta. Hér má finna hugmyndir að leiðum til að efla orðaforða barna.


Skrifa eða segja sögur

Að segja eða skrifa sögur er góð leið til að efla lesskilning og málþroska barna. Yngri börn geta til dæmis teiknað myndir og sagt frá því sem er að gerast á myndinni. Fullorðnir geta hjálpað barninu að skrifa söguna niður.

Hugmyndir:

  • segja frá ferðalagi eða deginum sínum
  • teikna mynd og segja frá henni
  • segja frá uppáhaldsatriði í bók eða mynd

Heimildir

Ásthildur Bj. Snorradóttir, Anney Ágústsdóttir, Bergrós Ólafsdóttir, Margrét Þóra Jónsdóttir og Sigurður Sigurjónsson. (2014). Snemmtæk íhlutun í málörvun tveggja til þriggja ára barna. Höfundar

Oakhill, J., Cain, K. og Elbro, C. (2015). Understanding and teaching reading comprehension. Routledge. 

Rósa Eggertsdóttir. (2019). Hið ljúfa læsi. Höfundur