Markmið síðunnar

Gagnagrunnur upplýsinga og hugmyndabanki

Það er til aragrúi af íslensku efni sem styður lestrarkennslu og þá grunnfærni sem þarf til þess að auðvelda hana. Hins vegar var hvergi hægt að nálgast upplýsingar um hvað væri í boði án þess að þurfa að fara að leita og skoða. Þannig var eitt af markmiðum þessarar síðu að taka þetta efni saman og flokka eftir tegund og tilgang.

Vefsíðan er einnig hugsuð sem hugmyndabanki með hugmyndum um hvernig hægt sé að blanda lestrarþjálfun inn í daglegt líf á skemmtilegan og fjölbreyttan máta.

Vefsíðan er hugsuð sem gagnagrunnur sem tekur efni saman og flokkar það eftir tegund og innihaldi. Þannig er hægt að leita að efni sem tengist vissri færni, s.d. hljóðaðferðafræði. En einnig er hægt að leita eftir því hvaða miðil er verið að vinna með, s.d. spjaltölva.

Brúa bilið og efla forráðamenn

Vefsíðan er fyrst og fremst hugsuð fyrir foreldra og forráðamenn barna í fyrsta bekk sem eru að hefja lestrarnámið sitt. Með efni og upplýsingum sem styðja við námið og þá kennslu. Þó er margt annað sem nýtist líka yngri börnum.

Foreldar, forráðamenn, leikskólinn, grunnskólinn og fleiri. Allir þessir aðilar koma að uppeldi barna og námi þeirra. Markmiðið er að með vefsíðunni geta allir fundið efni sem þeir geta notað á sínum vettvangi.

Forráðamenn gegna lykilhlutverki í lífi barna. Stærsta málþroska og orðaforðatímabilið er um 4-6 ára, áður en börn byrja í grunnskóla. Á þessum tíma læra börn orð á miklum hraða og bara það að lesa reglulega fyrir börn skiptir miklu máli.

Gera erlent efni aðgengilegra

Það er erlent efni sem maður hefur oft viljað að væri til fyrir íslensku. Sumt er ekki hægt að beinþýða án töluverðar fyrirhafnar (eins og öpp og leikir). En margt er hægt að nýta með sífellt öflugri tækni og þýðingarforritum. Farið verður yfir eitthvað af erledu efni, eitthvað þýtt og leiðbeiningar hvernig hægt sé að nýta það eða þýða á auðveldan máta þannig að hægt sé að nota í kennslu eða heima fyrir.

Um höfundinn

Ég heiti Ingibjörg Ómarsdóttir og er kennari og þessi vefsíða er innögn mín til þess að ljúka M.ed náminu mínu við Háskólann á Akureyri til að öðlast M.ed gráðu í menntunarfræðum og kennsluréttindi.

Ég er fædd og uppalin fyrir norðan og er núna búsett fyrir austan þar sem ég vinn við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla. Síðan ég byrjaði í náminu við Háskólann á Akureyri hef ég haft mikinn áhuga á lestrarnámi barna og velt því fyrir mér hvernig hægt væri að gera lestrarnámið aðgengilegra fyrir foreldra og aðra forráðamenn barna. Afraksturinn af þeim áhuga og hugmyndum er þessi vefsíða.