Lesskilningur

Hvað er Lesskilningur?

Lesskilningur og orðaforði helst saman í hendur. Við þurfum orðaforða til þess að geta skilið orðin sem við lesum, en lesskilninginn til að setja orðin í samhengi sem við getum dregið merkingu af. Öll börn hafa öðlast og lært einhvern orðaforða, lesskilning og læsi áður en þau byrja í grunnskóla, en það er oftar en ekki mikill og marktækur munur á milli barna á getustigi þeirra (Turner o.fl, 2016, bls. 276).

Tungumál er undirstaða margs í lífinnu, sérstaklega menntunar ásamt þvi að hafa þýðingarmikil áhrif á tilfinningarlegan og félagslegan þroska. Lesskilningur er getan að lesa orð og nota fyrri þekkingu og orðaforða til þess að mynda tengingar skilja það sem stendur (Rósa Eggertsdóttir, 2019, bls. 35, 105).

Hugmyndir að aðferðum til að þjálfa lesskilning

Mörg dæmi eru um að þeir sem eiga í erfiðleikum með lesskilning eru oft með mjög slakan orðaforða, þó svo að vissulega spili aðrir hlutir einnig inn í dæmið, en einnig getur slæmur lesskilningur takmarkað aukningu á orðaforða (Oakhill o.fl, 2015, bls. 61). Því er svo mikilvægt að byggja þetta upp hjá börnum. Hér fyrir neðan má finna hugmyndir til að efla lesskilning hjá börnum.


Lestrarstund

Lestur er góð leið til þess að byggja upp máltjáningu þeirra og allar bækur vinna með lesskilning og orðaforða. Mkilvægt er að gefa börnum tækifæri til þess að tjá sig á meðan á lestri stendur, hvað þeim finnst, hvað þau haldi að gerist næst, ljúka við setninguna eða búa til sína eigin söguhugmynd út frá myndunum sjálfum (Ásthildur Bj. Snorradóttir o.fl., 2014, bls. 42).

Hér á síðunni er búið að taka saman hugmyndir að spurningum sem hægt er að spyrja á meðan á lestri stendur og má finna með linknum hérna:


Byggja upp orðaforða

Eins og fram kom þá tengist orðaforði og lesskilningur saman. Hægt er að sjá hugmyndir til að efla orðaforða hér á síðunni og má finna með linknum hérna:


Skrifa eða segja sögur

Að skrifa og/eða segja sögur er góð leið til þess að efla lesskilning og verkefni sem börn á öllum aldri geta gert. Þessi yngstu geta teiknað myndir og sagt hvað er að gerast á myndinni, forráðamenn geta einnig skrifað sögurnar niður fyrir börn sem eru enn ekki byrjuð að lesa/skrifa.

  • Segja frá ferðalögum
  • Teikna mynd og skrifa eða segja hvað er að gerast á myndinni
  • Teikna og segja frá uppáhalds atriði í bók/mynd

Heimildir

Ásthildur Bj. Snorradóttir, Anney Ágústsdóttir, Bergrós Ólafsdóttir, Margrét Þóra Jónsdóttir og Sigurður Sigurjónsson, (2014). Snemmtæk íhlutun í málörvun tveggja til þriggja ára barna. Höfundar

Oakhill, J., Cain, K. og Elbro, C. (2015). Understanding and teaching reading comprehension. Routledge.