Stafaspil
Það eru til nokkrar gerðir stafaspila sem henta bæði börnum sem eru að byrja að læra fyrstu stafina og einnig þeim sem lengra eru komin. Þau er hægt að nota á ýmsa vegu, allt eftir því hvað verið er að þjálfa hverju sinni en þó vinna þau flest með umskráningu (hægt að skoða hugtakið undir „Fræðsla“). Hér fyrir neðan eru ýmsar hugmyndir hvernig hægt er að nýta spilin, þó svo að listinn sé engan veginn tæmandi.

Stafastuð frá A til Ö
Bára Brandsdóttir
- Hástafir
- Myndaspjöld
- Fæst í bókabúðum og netverslunum

Stafalist
Elín Davis
- Hástafir
- Lágstafir
- Fæst í bókabúðum og netverslunum

Stafa og myndaspil – með íslenska stafrófinu
Memore
- Hástafir
- Lágstafir
- Myndaspjöld
- Fæst í ákveðnum búðum og netverslunum
Það er einnig hægt að útbúa heimagerð spil í staðinn fyrir að kaupa þau. Þannig getur fyrsta verkefnið verið að útbúa spil með stöfum og myndum sem hægt er að vinna með. Fyrir hvern staf þarf að búa til þrjú spil. Eitt með hástaf, eitt með lágstaf og síðan eina mynd sem byrjar á stafnum.
Flest verkefnin eru hugsuð sem samvinna forráðamanna og barna.
Hástafir + Lágstafir
Stafir + Myndir
Hástafir + Lágstafir + Myndir
Para saman
Para saman hástafið við lágstafi. Hægt er að vinna það á mismunandi hátt. Ein leið er að leggja alla hástafi eða lágstafi niður (þurfa ekki að vera allir stafirnir, hægt að notast bara við þá stafi sem verið er að vinna með). Síðan er eitt spil dregið í einu af hinum stöfunum, og parað saman við samsvarandi staf á borðinu. Gott að segja hvað stafurinn segir með.
Tengja hljóð við staf
Stafir lagðir á borðið (annaðhvort hástafir eða lágstafir). Síðan er barnið beðið um að finna stafinn sem segir (hljóð) og barnið á að setja höndina á spjaldið. Hægt að hafa fáa stafi á borðinu eða marga. Markmiðið að vinna upp hraða.
Minnisspil
Spilunum raðað niður á borðið á hvolfi. Finna par af há- og lágstaf með því að snúa tveimur spjöldum við í einu og sá vinnur sem er með flest pör í lokin.
Staf fyrir staf
Hér má nota hástafi, lágstafi eða bæði. Farið er í gegnum bunkann, eitt spil í senn, og barnið spurt hvað stafurinn heitir og hvað hann segir. Flokka má stafina eftir því hvaða stafi barnið þekkir bæði heiti og hljóð á, bara annað hvort eða hvorugt, og þannig má sjá hvaða stafi væri gott að vinna með fyrst. Í verkefnunum sem listuð eru hérna er mikilvægt að hafa í huga að hafa blöndu af stöfum sem barnið þekkir eða þarf að vinna með og er þetta góð leið til að flokka stafina eftir því.
Tenging við umhverfið
Draga staf úr stokknum. Spyrja barnið hvort það geti fundið eða séð hluti sem byrja á þessum staf eða hafa þennan staf í orðinu.
Raða orðunum á myndinni upp með stöfum
Á spjöldunum sem fylgja þessum spilum eru nöfn hlutanna skrifuð undir myndirnar. Barnið getur raðað orðinu upp með stafaspjöldunum og hljóðað sig í gegnum orðið.
Raða saman orðinu
Segja hvaða mynd er á spjaldinu án þess að barnið sjái orðið og hljóða sig í gegnum það og fá barnið til þess að setja orðið saman. Hægt er að vinna þetta eftir mismunandi getustigi barnsins með því að hafa annaðhvort fáa eða marga valkosti fyrir framan barnið af stöfum. Til dæmis er hægt að vera eingöngu með stafina sem eru í viðkomandi orði, vera með alla stafi stafrófsins, og allt þar á milli.
Hvaða hljóð heyrir þú í orðinu?
Myndaspjald dregið eða valið. Orðið lesið og spurt um einstaka hljóð eða stafi í orðinu. Hægt er að spyrja hvort barnið heyri ákveðið hljóð eða ákveðinn staf í orðinu, svo er hægt að bæta við hvort hljóðið er í upphafi orðs, fyrir miðju eða í enda orðs.
Minnis samstæðuspil
Spilunum raðað niður á borðið á hvolfi. Finna par af staf og mynd með því að snúa tveimur spjöldum við í einu og sá vinnur sem er með flest pör í lokin.
Breyta orðum eftir hljóðum
Nokkrir stafir valdir sem geta myndað einföld orð. Byrjað er að setja saman orð, t.d. með því að biðja barnið að búa til orðið „lús“. Ef barnið á erfitt með að lesa orðið er hljóðað hægar í gegnum það. Síðan er barnið beðið að breyta orðinu, t.d. breyta „lús“ í „hús“. Barnið á þannig að ná að greina hvaða stafur breytist og hvaða stafur kemur í staðinn. Erfiðleikastig fer eftir getu barnsins og hversu margir stafir eru í boði til að velja úr.
Para saman
Hægt að hafa sem framhald af hinum para saman leiknum sem notast við hágstafi og lágstafi eða aðeins með staf og mynd. Hægt að leggja eina sort niður (hástafi, lágstafi eða myndir). Síðan eru hinar tvær sortirnar stokkaðar saman. Eitt spil dregið í einu og parað saman við það sem við á. 3 spil saman og þá er hægt að snúa settinu við.
Minnisspil (erfitt)
Spilunum raðað niður á borðið á hvolfi. Finna sett af hástaf, lágstaf og mynd með því að snúa þremur spjöldum við í einu og sá vinnur sem er með flest sett í lokin.
Flokkun
Öllum spilunum blandað saman í bunka. Barnið á að flokka hástaf, lágstaf og mynd saman eins hratt og hægt er.
Hvað vantar?
Hægt að gera með tveimur eða öllum þremur sortum (erfitt). Spil valin sem mynda nokkur sett og lögð niður á borðið (einnig hægt að gera minnisspilið fyrst). Síðan eru spilin tekin og stokkuð og eitt spil tekið úr sem barnið veit ekki hvað er, spilin lögð niður aftur og síðan á barnið að finna út hvaða spil vantar. Erfiðleikastig fer eftir hvort notast er við 3 spil í setti eða bara há- og lágstafi og síðan hversu mörg sett eru (mælt með að byrja aðeins á pari af há- og lágstöfum og aðeins nokkrum pörum. Síðan hægt að fjölga pörum sem unnið er með og bæta myndaspjöldunum við).