Efni frá mms.is
Stafaleikir Búa
Stafaleikir Búa vinnur með heiti og hljóð stafanna, á, i, í, ó, ú, l, s og r. Forritið vinnur mikið með endurtekningar og skipulagða hægari innlögn. Æfingarnar eru hugsaðar til að þjálfa nemendur sem þurfa mjög hæga innlögn og mikla endurtekningu til að ná tökum á undirstöðu lesturs.
- 4 ára+
- Spjaldtölvuvænt
Stafir
Stafur lesinn upp (nafn og hljóð) og síðan á að finna alla stafina sem eru eins á listanum.
- Umskráning
Orð
Unnið með algengar orðmyndir sem kenndar eru í upphaf lestrarkennslu. Markmiðið er að finna eins orð og eins og í fyrri verkefnum eru orðin lesin upp. Orðin sem unnið er með eru: ekki, að, sagði, og, ég, var, segir, það, er, vil.
Tenging
Tveggja stafa orð sagt og síðan á að velja hvaða stafur kemur næst
- Umskráning
- Hljóðkerfisvitund
Lestur
Tvö tveggja stafa orð lesin upp og síðan á að velja hvaða kassi passar við.
- Umskráning
- Hljóðkerfisvitund

Stafaleikir Bínu
Framhald af Stafaleikir Búa. Leikirnir eru eins settir upp og í fyrri leik. Í leiknum ,,Orð” hafa orðmyndirnar þegar, með og sem, bæst við.

Lestur er leikur
Lestur er leikur er forrit sem vinnur með að læra stafi og hljóð. Sérstaklega hugsað fyrir nemendur sem þurfa hægari og skipulagðri þjálfum til að læra stafina. Þrjú erfiðleikastig eru í boði fyrir hvern leik.
- 5 ára+
- Spjaldtölvuvænt
Hlusta á hljóð
Fjórar myndir koma upp, hver með hljóðtakka. Þegar smellt er á myndina heyrist hvað hluturinn heitir og markmiðið er að finna myndirnar sem hafa visst hljóð.
- Umskráning
- Hljóðkerfisvitund
Finna mynd
Eitt orð stendur og síðan eru þrjár myndir og á að velja hvaða mynd passar við orðið.
- Umskráning
- 6 ára +
Stafarugl
Mynd af hlut og síðan er stafarugl fyrir neðan. Pússla saman orðinu í rétta röð.
- Umskráning
- 6 ára +
Stafir og hljóð
Hægt er að velja alla stafina og upp er lesið hvað hver stafur heitir og segir og síðan eitt orð sem byrjar á stafnum.
- Umskráning
Fyrsti stafurinn
Nafn á hlut er lesið upp og á að velja hvaða stafur heyrist fyrst í orðinu og eru þrír valmöguleikar í boði.
- Umskráning
- Hljóðkerfisvitund
Finna orð
Hér er ein mynd sett upp og síðan eru 4 orð fyrir neðan og á að velja hvaða orð passar við myndina
- Umskráning
- 6 ára +
Búa til orð
Mynd af hlut og síðan er búið að skrifa fyrstu tvo stafina í orðinu. Síðan á að velja hvaða hljóð koma næst í orðinu.
- Umskráning
- 6 ára+

Samhljóðar í himingeimnum
Gagnvirkur vefur sem er hugsaður sem stuðningur við lestrarnám. Vinnur mikið með hlustun og hljóðgreiningu þar sem markmiðið er að greina á milli hljómlíkra bókstafa. Æfingarnar eru hugsaðar sem góður grunnur fyrir stafsetningu. Allar æfingarnar hafa tvö eða þrjú erfiðleikastig.
- 6 ára+
- Spjaldtölvuvænt
Geimsendingin
Unnið með framstæð hljóð (b,p,d,t)
Geimvélmennið, Geimgolf og Geimlendingin
Í þessum verkefnum á að velja hvort að orðin sem eru sögð séu með einföldum eða tvöföldum samhljóða.
Sjóntækjapúsl
Unnið með framstæð og innstæð hljóð (g-k og v-f s.d.)
Geimsteinar
Hér vantar 2 samhljóða inn í orðin og eru samhljóðarnir annaðhvort tvöfaldir eða samhljóðasambönd.
Geimkönnuður
Unnið með einfalda og tvöfalda samhljóða

Annað efni
Orðalykill
Orðalykill er lestrar- og málörvunarforrit sem vinnur með undirstöðuþætti lesturs og hannað af talmeinafræðingunum Ásthildi Bj. Snorradóttur og Bjartey Sigurðardóttur og hannað með Mussila ehf sem er þekkt fyrir góðar menntalausnir. Appið hentar öllum börnum sem eru að læra íslensku og ýtir undir snemmtæka íhlutun og málörvun. Appið er aðgengilegt á bæði google play og app store.
Leiknum er skipt í tvennt: Læra og Leika. Undir ,,Læra” eru 22 lesskilningsæfingar þar sem unnið er með orðabók, spurningar og fyrirmæli út frá sömu mynd. Síðan undir ,,Leika” eru mismunandi leikir sem vinna með mismunandi málörvun.
- 4 ára+
- Spjaldtölvuvænt
- Frítt
Læra
Orðabók
Hér á að draga orð á rétta staði. Orðin eru lesin upp þegar ýtt er á þau.
- Orðaforði
Leika
Spurningar
Lesnar eru upp spurningar sem vinna með orðaforða og lesskilning. Hægt er að ýta á takka til þess að orðin séu lesin upp þannig að það er ekki nauðsynlegt að kunna að lesa. Tveir svarmöguleikar í boði.
- Orðaforði
- Lesskilningur
Leika
Söguspurningar
Stuttar sögur eru lesnar upp. Síðan er ein spurning lögð fyrir og fjórir svarmmöguleikar í boði. Hægt að ýta á takka þar sem allt er lesið upp svo ekki þörf að kunna að lesa.
- Lesskilningur
- Orðaforði
Leika
Spurningar +
Fleiri spurningar. Sama uppsetninging og í fyrri spurningarverkefni,
- Orðaforði
- Lesskilningur
Leika
Orðla
Finna orð út frá stöfum þar sem gefnar eru vísbendingar eftir því hvaða stafi þú giskar á. Æskilegra fyrir eldri börn sem kunna að lesa.
- Orðaforði
Læra
Spurningar
Lesnar upp spurningar út frá mynd þar sem svara á já eða nei eða ýta á vissa hluti á myndinni.
- Lesskilningur
Leika
Syngdu með
Nokkur lög þar sem börn syngja með og reyna að halda lagi. Texti með til að lesa eftir.
- Hljóðkerfisvitund
Leika
Orðastafli
Tveir dálkar og nokkur orð sem á að flokka eftir þvi í hvorn dálkinn orðin passa í. Orðin lesin upp þegar ýtt er á þau.
- Orðaforði
- Lesskilningur
Leika
Tengja
Para saman samheiti. Orðin lesin upp þegar ýtt er á þau.
- Orðaforði
Læra
Fyrirmæli
Myndin er í svarthvítu og lesin upp fyrirmæli um hvað skal gera. Síðan má lita myndina í lokin.
- Lesskilningur
- Orðaforði
Leika
Stafsetning
Hér er búið að víxla stöfum í orði. Stafina þarf að færa á rétta staði og hægt að ýta á takka til þess að lesa upp orðið.
- Umskráning
- Hljóðkerfisvitund
- 5 ára+
Leika
Orðasúpa
Stafarugl þar sem á að finna orðin sem eru í lista til hliðar. Orðin lesin upp þegar þau finnast.
- Stafaþekking
Leika
Setningasmiður
Búið er að búta setningu niður í orð og á að raða orðunum upp þannig að þau mynda heilstæða settningu. Orðin eru ekki lesin upp fyrr en setningunni hefur verið náð. Þannig er æskilegt að vinna með verkefnið með einhverjum sem kann að lesa.
- Lesskilningur

GraphoGame lestrarleikur
Graphogame vinnur með undirstöðuatriði í lestri og er sett upp sem margir littlir leikir sem hjálpa börnum og fullorðum að læra að lesa íslensku. Hægt er að setja upp nokkra spilara inn í hvern leik og leikurinn aðlagar sig að þekkingu og getu hvers og eins. Appið er til bæði google play og app store.
- 4 ára+
- Spjaltölvuvænt
- Frítt
Leikurinn
Leikirnir
Appið er gert fyrir börn og fullorðna sem eru að byrja að undirstöðu lestrar á íslensku. Hentar börnum á aldrinum 4-9 ára.
- Þekkja stafina og hljóðin
- Atkvæði
- Fyrstu orðin
- Spora stafi
- Tengja saman stafi í orð
- Rím
Uppsetning
Gagnvirkur leikur
Einstaklingurinn fær að setja upp sinn eigin karakter, síðan labbar hann um kort til þess að vinna verkefni, safna peningum og stjörnum sem hægt er að nota til þess að kaupa límmiða og safna í límmiðabók.
Uppsetning
Gagnvirkur leikur
- Aðeins hljóð stafanna eru sögð en ekki heiti þeirra
- Vinnur aðeins með littlu stafnina
- Hlustunarskilningur í forgrunni
- Unnið með orð og óorð til að þjálfa flæði
Unnið með
Tilgangur
Leikurinn vinnur helst með og þjálfar:
- Undirstöðuþætti lesturs
- Hljóðkerfisvitund
- Umskráningu
- Lesskilning
Handbók
Handbók fyrir kennara
Hægt er að nálgast handbók fyrir kennara um leikinn inn á mms þar sem farið er ítarlega yfir hvernig hægt sé að nýta leikinn.

Forritið
Jákvæðir punktar
- Nettenging óþörf
- Engar auglýsingar
- Engin innkaup í forriti
- Frítt