Markmið síðunnar
Brúum bilið og eflum forráðamenn í lestrarnáminu
Foreldrar, skólar og samfélagið vinna saman að námi og uppeldi barna. Á aldrinum 4 til 6 ára tekur málþroski og orðaforði stórum framförum og reglulegur lestur á þessum árum getur haft mikil áhrif.
Þessi vefsíða er hönnuð til að styðja við bakið á þér. Hér finnur þú efni og upplýsingar sem nýtast foreldrum og öðrum forráðamönnum barna í elstu bekkjum leikskóla og í fyrsta bekk grunnskóla.
Snjall gagnagrunnur og hugmyndabanki
Það er til mikið af góðu íslensku lestrarnámsefni, en hingað til hefur vantað stað sem safnar því saman. Lestrarkennarinn.is er sá staður.
Á síðunni getur þú leitað eftir:
- Viðfangsefni: Til dæmis hjóðaðferð, lesskilning eða orðaforða.
- Miðlum: Til dæmis bókum, vefsíðum eða forritum.
- Daglegt líf: Hugmyndir til að flétta lestrarþjálfun að daglegu lífi á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt.
Um höfundinn
Ég heiti Ingibjörg Ómarsdóttir og er kennari. Þessi vefsíða er hluti af lokaverkefni mínu til M.Ed. gráðu í menntunarfræðum og kennsluréttindum frá Háskólanum á Akureyri.
Frá því ég hóf nám við Háskólann á Akureyri hef ég haft sérlegan áhuga á lestrarnámi barna og haft áhuga á hvernig hægt væri að gera það aðgengilegra fyrir foreldra og aðra forráðamenn. Þessi vefsíða er afrakstur þeirrar vinnu.

